Lítil og meðalstór fyrirtæki
Lítil og meðalstór fyrirtæki þurfa greiðslugátt, en viðhald tenginga við stór og þunglamaleg greiðslukerfi er bæði kostnaðarsamt og flókið. Með Áskelli geta fyrirtæki rukkað viðskiptavini sína í mörgum gjaldmiðlum með mismunandi greiðsluleiðum. Fyrirtæki fá heildaryfirsýn yfir endurteknar greiðslur og betri spár.
Fyrirtæki geta fullkomlega hvítmerkt Áskell með því að fella hugbúnaðinn inn á vefsíðuna sína. Öll samskipti frá Áskelli má einnig aðlaga að vörumerkinu þínu og senda frá þínu léni til að tryggja hnitmiðaða notendaupplifun.